L'amour fou
L´amour fou er 5 manna hljómsveit sem spilar sambland af íslenskri og erlendri tangó-/salontónlist í útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar, sellóleikara hljómsveitarinnar. Salontónlist er stundum kölluð “heldri stofu-tónlist” og á ættir að rekja til gömlu Vínarvalsanna. Á fyrri hluta síðustu aldar varð salontónlistin fyrir miklum áhrifum frá tangótónlist og dægurtónlist og þótti ómissandi stemmningsvaki á heldri evrópskum kaffihúsum.
Myndir
Myndir frá Debut tónleikum Tinnu 2004, tónleikum L'amour fou 2002 og frá undirbúningi og eftir tónleika á Myrkum Músíkdögum 2005Das Klavierkonzert in Island nach 1950
Lokaritgerð Tinnu Þorsteinsdóttur frá Tónlistarháskólanum í Detmold-Münster, Þýskalandi, 2000
Microsoft Word Skjal (1.15 mb)
Acrobat PDF (1.37 MB)
Portrett
Smellið hér fyrir mynd í prenthæfri stærðPrepared Piano
Prepared Piano er hugtak sem varð til hjá tónskáldinu John Cage. Ég komst í kynni við það í Boston þegar ég tók þátt í kúrsi í NEC þar sem nemarnir tókust m.a. á við fyrirbærið. Það sem hugtakið felur í sér er að setja framandi hluti í píanóið á milli strengja þess eftir kúnstarinnar reglum til að breyta hljóðum þess.



