L'amour fou
L´amour fou er 5 manna hljómsveit sem spilar sambland af íslenskri og erlendri tangó-/salontónlist í útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar, sellóleikara hljómsveitarinnar. Salontónlist er stundum kölluð “heldri stofu-tónlist” og á ættir að rekja til gömlu Vínarvalsanna. Á fyrri hluta síðustu aldar varð salontónlistin fyrir miklum áhrifum frá tangótónlist og dægurtónlist og þótti ómissandi stemmningsvaki á heldri evrópskum kaffihúsum.
Meðal helstu meistara sem hljómsveitin hefur spilað verk eftir eru Carlos Gardel, Jakob Gade, Nino Rota og Astor Piazzolla. Af innlendum vettvangi má m.a. nefna nokkra smelli sem Hrafnkell hefur útsett í nýstárlegum búningi, Vegir liggja til allra átta eftir Sigfús Halldórsson, Litli tónlistarmaðurinn eftir Freymóð Jóhannsson (12. september), Maður hefur nú eftir Gunnar Reyni Sveinsson, Austurstræti eftir Þórhall Sigurðsson (Ladda), Þú og ég eftir Gunnar Þórðarson, syrpu laga eftir Jón Múla Árnason, auk þess sem finna má stykki eftir Hrafnkel Orra á efnisskránni. Meðlimir hljómsveitarinnar hafa þekkst síðan á menntaskólaárunum, en hafa starfað saman i núverandi mynd síðan 2002 og síðan þá haldið fjölda tónleika á Íslandi. L´amour fou var styrkt af Menningarborgarsjóði til að gera nýjar útsetningar á íslenskum söng-/og dægurlögum og fara í ferðalag um landið sumarið 2003. Nýárstónleikar bandsins í Iðnó árið 2002 voru teknir upp af Ríkisútvarpinu og útvarpað á nýársdag 2003. Grúppan samanstendur af Hrafnhildi Atladóttur, fiðlu, Guðrúnu Hrund Harðardóttur, víólu, Hrafnkeli Orra Egilssyni, selló, Gunnlaugi Torfa Stefánssyni, kontrabassa og Tinnu Þorsteinsdóttur, píanó og eru þau búsett um víðan völl, Íslandi, Hollandi og Bandaríkjunum. Í ágúst 2004 kom hljómsveitin saman í hljóðveri og tók upp geisladiskinn "Íslensku lögin", sem var gefinn út um jólin 2005, hlustið hér.
Tónleikar hljómsveitarinnar til þessa hafa verið:
2006
Leikið á opnun sýningarinnar "Pure Iceland" í Science Museum, London, janúar
2005
Útgáfutónleikar vegna tilkomu geisladisksins "Íslensku lögin", Þjóðleikhúskjallaranum, desember
2004
Tónleikar í Iðnó, september
2003
Tónleikar í Iðnó, 26. og 27. ágúst
Tónleikar í Hömrum, 24. ágúst, Tónlistarfélag Ísafjarðar
Hádegistónleikar í Ketilhúsi, Akureyri, 22. ágúst
Tónleikar á Menningarborgarnótt í Iðnó, 16. ágúst
2002
Nýárstónleikar bandsins í Iðnó, 30. desember
Tónleikar í Hömrum, Ísafirði, september
Tónleikar í Kaffileikhúsinu, september
1999
Fyrstu tónleikarnir í Hlaðvarpanum
