Random

Heim Dagatal Ferilskrá Gallerý English Tölvupóstur

Prepared Piano


Smelltu til að sjá stærri myndPrepared Piano er hugtak sem varð til hjá tónskáldinu John Cage. Ég komst í kynni við það í Boston þegar ég tók þátt í kúrsi í NEC þar sem nemarnir tókust m.a. á við fyrirbærið. Það sem hugtakið felur í sér er að setja framandi hluti í píanóið á milli strengja þess eftir kúnstarinnar reglum til að breyta hljóðum þess.

Þar má nefna skrúfur, skífur, peninga, strokleður, plast, gúmmí og fleira. Þetta er hin skemmtilegasta aðgerð og skapar frábæran hljóðheim sem minnir oft á slagverk frekar en píanó. Skrifuð verk sem nota þessa tækni eru m.a. Sonatas and Interludes eftir John Cage og For Prepared Piano eftir Christian Wolff. "Kittið" á þessari mynd hefur þróast með tilraunum mínum og enn bætist í það.